Laun bæjarfulltrúa endurskoðuð
16.06.2017
Á bæjarstjórnarfundi þann 13. júní síðastliðinn tók bæjarstjórn Akraness ákvörðun um endurskoðun launa kjörinna fulltrúa sem felur í sér hækkun launa um 9% frá 1. júní 2017. Kjör bæjarfulltrúa hafa fram til þessa tekið mið af þingfarakaupi en í nóvember síðastliðnum tók bæjarstjórn ákvörðun um að fresta breytingu á kjörum bæjarfulltrúa, í kjölfar ákvörðunar Kjararáðs um hækkun þingfararkaups alþingismanna um rúmlega 44%.
Ákvörðun bæjarstjórnar nú felur í sér:
- Að laun kjörinna fulltrúa á vegum Akraneskaupstaðar eru innan marka SALEK-samkomulagsins líkt og gildir um meginþorra íslensks vinnumarkaðar.
- Að laun kjörinna fulltrúa eru ekki lengur tengd þingfararkaupi alþingismanna heldur launavísitölu og breytast ekki á ný fyrr en í janúar 2019.
- Að samsetning kjara kjörinna fulltrúa verði að loknum sveitarstjórnarkosningum árið 2018 jöfnuð við viðmiðunarsveitarfélög.
- Að biðlaunaréttur kjörinna fulltrúa er afnuminn (strax) til samræmis við fyrirkomulag hjá viðmiðunarsveitarfélögum.