Nýr leikskóli í Skógarhverfi - undirskrift verksamnings
11.05.2021
Frá undirritun samnings þann 7. maí 2021
Efri röð: Anna María Þráinsdóttir frá Verkís, Alfreð Þór Alfreðsson og Sigurður Páll Harðarson f.h. Akraneskaupstaðar.
Neðri röð: Sigurjóns Skúlason f.h. Sjamma ehf, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Heimir Einarsson f. h. Sjamma ehf.

Föstudaginn 7. maí síðastliðinn var skrifað undir verksamning vegna uppsteypu og utanhúsfrágangi á nýju leikskólahúsnæði við Asparskóga 25. Sjammi ehf er verktaki og mun Verkís hafa umsjón með verkinu fyrir hönd Fasteignafélags Akraneskaupstaðar.
Verkefnið nær til að byggja um 1500 m² leikskóla úr forsteyptum einingum. Hluti af verki er að koma fyrir lögnum í grunni, gluggar og hurðar skulu settar í, ásamt því skal ganga frá þaki og ljúka öllum utanhúsfrágangi á byggingunni.
Áætlað er að verklok sé eigi síðar en 1. mars 2022.