Opið fyrir umsóknir menningarstyrkja 2024 - Frestur framlengdur til og með 14.janúar
Akraneskaupstaður hefur opnað fyrir árlega styrkumsókn á sviði menningarmála fyrir árið 2024. Umsóknafrestur er framlengdur til og með 14. janúar 2024.
Hlutverk styrkjanna er að efla menningarlíf Akraneskaupstaðar í samræmi við núverandi menningarstefnu bæjarins. Við hvetjum öll áhugasöm til þess að sækja um hvort sem er einstaklingar, hópar, félög, stofnanir eða fyrirtæki.
Við mat og afgreiðslu styrkja verður lögð sérstök áhersla á að styðja við verkefni og viðburðahald sem eru til þess fallin að efla bæjarandann og okkar blómlegt menningarlíf. Hvetjum við umsækjendur til nýsköpunar og fögnum við öllum hugmyndum um samstarf.
Hagnýtar upplýsingar:
Upplýsingar um reglur vegna styrkumsókna á sviðið menningarmála má finna hér.
Menningarstefnu Akraneskaupstaðar 2018-2023 má lesa hér.
Umsóknarfrestur er til og með 14. janúar 2024 og tekið er við umsóknum hér.
Nánari upplýsingar veitir Vera Líndal Guðnadóttir verkefnastjóri menningarmála á netfangi: mannlif@akranes.is