Samningur við Jarðyrkju ehf. um lóðafrágang nýja leikskólans undirritaður
22.03.2022
Mánudaginn 21. mars var undirritaður samningur milli Akraneskaupstaðar og Jarðyrkju ehf. um lóðafrágang við nýbyggingu leikskólans á Asparskógum 25.
Jarðyrkja ehf. átti lægsta tilboð sem hljóðaði upp á kr. 111.999.617. Verklok eru áætluð haustið 2022.
Búast má við að vinna við frágang lóðar fari í gang á næstu vikum.