Skemmdir á Akranesvita
12.05.2021
Þeir leiðinlegu atburðir hafa gerst að skemmdarverk hafa verið unnin á Akranesvita í tvígang, fyrst í mars og aftur núna í maí.
Búið er að tilkynna verknaðinn til lögreglu og Vegagerðarinnar, en vitar landsins eru eign vegagerðarinnar.
Við biðjum fólk að hafa opin augu og tilkynna til Akraneskaupstaðar og lögreglunnar ef það verður vart við skemmdir niður á Breið.