Skemmtileg dagskrá á 17. júní
14.06.2017
Glæsileg hátíðardagskrá er fyrir alla fjölskylduna á 17. júní. Dagurinn hefst með þjóðlegum morgni á Byggðasafninu þar sem gestir í þjóðbúningi fá óvæntan glaðning. Sýningin Keltnesk arfleið er opin í Guðnýjarstofu og ýmislegt verður gert fyrir börnin, s.s. andlitsmálun og teymt verður undir börnin. Aðgangur er ókeypis á Byggðasafnið þennan dag.
Skrúðganga er frá Tónlistarskólanum við Dalbraut að Akratorgi kl. 15.00 og er hátíðardagskrá á Akratorgi frá kl. 15.20. Númenór og Dóra úr Fjarskalandi stíga á stokk kl. 17 og margt fleira skemmtilegt verður gert. Hoppukastalar og sprell verður á Merkurtúni kl. 14-18.
Hér má skoða dagskrá hátíðarinnar nánar: