Stóraukin uppbygging og lækkun fasteignaskatta
Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2020 og þriggja ára áætlun 2021 til 2023 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Akraness þriðjudaginn 10. desember síðastliðinn (sjá hér). Einnig var fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun samþykkt.
Í fjárhagsáætlun 2020 eru helstu breytingar:
- Gert er ráð fyrir óbreyttu útsvari á árinu 2019, eða 14,52%
- Að gjaldskrár hækki í samræmi við lífskjarasamninga, eða um 2,5%.
- Sorphreinsunar- og eyðingargjald verður óbreytt á árinu 2020 þriðja árið í röð.
- Álagningarprósentur fasteignaskatts lækka. Stofn íbúðarhúsnæðis lækkar um 15,97%, fer úr 0,2865% í 0,2407% og hefur lækkað um 33,3% á árunum 2018-2020.
- Stofn fyrirtækjahúsnæðis lækkar um 11,415% og fer úr 1,5804% í 1,4% og hefur lækkað um 15,15% á árunum 2018-2020.
- Lóðarleiga af nýjum lóðum og endurnýjuðum samningum verður 1,199% af fasteignamatsverði atvinnulóða (álagningarprósenta lækkuð um 5,22% frá fyrra ári) og 0,3034% af fasteignamatsverði íbúðarhúsalóða (álagningarprósenta lækkuð um 20,47% frá fyrra ári) og er þetta þriðja árið í röð sem álagningarprósentur fasteignaskatts og lóðaleigu lækka hjá Akraneskaupstað.
Rekstrarafkoma Akraneskaupstaðar á árinu 2019 er áætluð 310 m.kr. eða sem nemur 3,8% sem hlutfall af tekjum sveitarfélagsins. Rekstrarafkoma næstu ára þ.e. á árunum 2020 til 2023 er áætluð að meðaltali 236 m.kr. og er rekstrarframlegð sama tímabils að meðaltali 2.8%. Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar gerir ráð fyrir áframhaldandi lækkun skulda samstæðunnar og gerir fjárhagsáætlunin ráð fyrir því að langtímaskuldir við lánastofnanir lækki úr 1.414 m.kr. í um 663 m.kr. á tímabilinu þ.e. frá árslokum 2019 til ársloka 2023 en lífeyrisskuldbindingar hækki úr 4.138 m.kr. í 4.273 m.kr.
Akraneskaupstaður mun viðhalda ábyrgri fjármálastefnu og sjá til þess að vera vel innan þeirra fjárhagslegu viðmiða sem gerð eru til sveitarfélaga, þ.e. að rekstrarjöfnuður síðustu þriggja ára (samanlögð rekstrarafkoma á þriggja ára tímabili) verður jákvæður sem nemur 1.662 m.kr. í árslok 2020. Fjárhagsáætlunin gerir jafnframt ráð fyrir því að rekstrarjöfnuður muni nema rúmum 635 m.kr. í árslok 2023 þrátt fyrir umtalsverðar fjárfestingar í innviðum bæjarins á þeim tíma og aukningu rekstargjalda s.s. vegna fimleikahúss, þjónustumiðstöð aldraðra og vegna nýs leikskóla.
Skuldaviðmið sveitarfélagsins, þ.e. heildarskuldir og skuldbindingar A- og B- hlutans sem hlutfall af reglulegum tekjum mun einnig fara áfram lækkandi samkvæmt fjárhagsáætlun bæjarins. Áætlað skuldaviðmið sveitarfélagsins í árslok 2019 mun nema 28% en hámark sveitarfélaga er 150% af reglulegum tekjum þess, fjárhagsáætlun Akranes gerir ráð fyrir því að skuldaviðmiðið fari lítillega hækkandi og muni verða um 34%% í lok árs 2023. Veltufjárhlutfall samstæðunnar er jafnframt mjög sterkt og nemur 2,5 en veltufjárhlutfall segir til um hversu vel í stakk búið sveitarfélagið er til þess að mæta nauðsynlegum greiðslum á næstu 12 mánuðum og á helst ekki að vera undir 1,0 til lengri tíma litið. Veltufjárhlutfall sveitarfélagsins mun þá fara lækkandi á tímabili fjárhagsáætlunarinnar í samræmi við aukna fjárfestingu. Áætlað er að veltufjárhlutfallið nemi 1,0 í árslok 2023.
Áætlað er að setja um um 1.505 m.kr. í fjárfestingar á árinu 2020 og eru 3.845 m.kr. fyrirhugaðar í fjárfestingar og framkvæmdir á næstu fjórum árum.
Meðal fjárfestinga og uppbygginga verkefna á árinu 2020:
- Menntun: Hannaður verður nýr sex deilda leikskóli og er stefnt að því að framkvæmdir byrji á árinu. Endurbætur í Brekkubæjarskóla halda áfram og mun bætast við viðbótar kennslustofa á árinu ásamt því að grunnskólalóðir verða endurhannaðar.
- Íþróttir: Lokið verður við byggingu fimleikahúss á árinu og byggð verður reiðskemma hjá Hestamannafélaginu Dreyra ásamt því sem húsnæði og aðstaða keilunnar verður endurbætt og lokið verður við hönnun fyrirhugaðra íþróttamannvirkja á Jaðarsbakka.
- Velferð og mannréttindi: Húsnæði Fjöliðjunnar verður endurbætt og stækkað eftir bruna. Lokið verður við byggingu fimm íbúða fyrir fatlaða í samstarfi við Þroskahjálp og eru væntingar um að framkvæmdir geti hafist á byggingu annarra fimm íbúða í samstarfi við Ás styrktarfélag. Fjárfest verður í tíu íbúðum í samstarfi við Hússjóð Brynju á Dalbrautarreit. Framkvæmdir hefjast innanhúss á þjónustumiðstöð fyrir aldraða eftir að hönnun líkur.
- Götur og stígar: Gatnaviðgerðir eru fyrirhugaðar við Krókatún, hluta af Garðagrund ásamt Suðurgötu. Ný gatnagerð er fyrirhuguð í Flóahverfi og Skógarhverfi og Faxabraut verður byggð upp ásamt eflingu grjótvarnar. Í stígagerð verður byrjað á stíg upp í Flóahverfi.
- Atvinnutengd verkefni: Fyrirhuguð er þátttaka í stofnun fyrirtækis um rekstur hitaveitu á Grundartanga. Nýr vefur til kynningar á Flóahverfi, Dalbrautareit, Sementsreit og Skógarhverfi verður gerður og í framhaldinu er fyrirhugað markaðsátak. Skipulag svæðis við Langasand ásamt Guðlaugu fer í hugmyndasamkeppni. Íbúafundur verður um atvinnumál tengt stefnumótun á svæði Breiðar í samstarfi við Brim.
Að sögn Sævars Frey Þráinssonar bæjarstjóra er fjárhagsstaða Akraneskaupstaðar sterk og stefnir í að rekstrarafkoma ársins í að vera afar góð líkt og á síðustu tveimur árum. Mikilvægt að viðhalda þeim árangri næstu árin en jafnframt treysta enn frekar grunnrekstur. Gangi þær fyrirætlanir eftir má sækja enn frekar fram og efla grunnþjónustu fyrir íbúa. „Sóknarfærin okkar hér á Skaganum eru svo sannarlega til staðar. Við höfum nýtt árið 2019 vel til stefnumörkunar til sóknar í atvinnumálum og nú viljum við hefja árið með samtali við íbúa um atvinnuuppbyggingu fyrirtækja á Akranesi og hjá nýjum frumkvöðlum. Við viljum hvetja til atvinnutengdra fjárfestinga í Flóahverfi, við Guðlaugu, á Breiðinni, á Sementsreit og síðast en ekki síst á Grundartanga þar sem mögnuð tækifæri eru til staðar. Markmiðið er að fylgja eftir góðum íbúafundi fyrr á árinu með eflingu góðra skóla til að bæta námsárangurs, líðan, heilbrigðs lífstíls og til undirbúnings fyrir fjórðu iðnbyltinguna. Við ætlum að nýta vel þann meðbyr sem við finnum til bæjarins til að fjölga íbúum með að gera nýja íbúðarreiti byggingarhæfa og með enn frekari lækkun álagningarstofna fasteignaskatta ætti það að takast vel til að laða að ný fyrirtæki. Við erum búin að vera í mikilli uppbyggingu íþróttamannvirkja og mun það halda áfram og ný mannvirki bætast við. Þá er gert er ráð fyrir uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlaða einstaklinga og endurbótum á húsnæði Fjöliðjunnar ásamt uppbyggingu og endurbótum gatna. Nú er það okkar allra að nýta möguleikana og sækja fram í okkar flotta fjölskyldubæ.“