Fara í efni  

Stuðningsfjölskyldur óskast til samstarfs

Velferðar- og mannréttindasvið óskar eftir stuðningsfjölskyldum fyrir börn á Akranesi. Stuðningsfjölskyldur taka á móti fötluðum og ófötluðum börnum til dvalar á heimili sínu að jafnaði eina helgi í mánuði með það að markmiði að styðja við foreldra barnsins, veita barninu tilbreytingu og stuðning. Önnur börn á heimilinu er ekki hindrun og ætlast er til þess að barnið verði hluti af daglegu lífi fjölskyldunnar á meðan á dvöl þess stendur.

Viðkomandi fjölskylda þarf að sækja um leyfi til að starfa sem stuðningsfjölskylda til velferðar- og mannréttindasviðs. 

  • Hér er sótt um rafrænt í þjónustugátt Akraneskaupstaðar

    Umsækjendur þurfa að skila inn heilbrigðisvottorði fyrir alla heimilismenn 15 ára og eldri þar sem staðfest er að hvorki andleg eða líkamleg veikindi komi í veg fyrir að umsækjandi geti starfað sem stuðningsforeldri. Starfsmenn velferðar- og mannréttindasviðs þurfa undirritað leyfi umsækjanda til að sækja um fullt sakavottorð hjá ríkissaksóknara fyrir þessa sömu aðila. Að framangreindum skilyrðum uppfylltum gera starfsmenn Barnaverndarnefndar úttekt á heimilinu og aðstæðum heimilismanna áður en leyfi er veitt. Laun eru greidd samkvæmt gjaldskrá Akraneskaupstaðar.

Nánari upplýsingar veita: Berglind Ósk Jóhannesdóttir ráðgjafaþroskaþjálfi netfang: berglind.johannesdottir@akranes.is og Ingibjörg Gunnarsdóttir yfirfélagsráðgjafi netfang: ingibjorg.gunnarsdottir@akranes.is eða í síma 4331000.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00