Styrkir til greiðslu fasteignaskatts 2019 - opnað fyrir umsóknir
14.08.2019
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til greiðslu fasteignaskatts til aðila með starfsemi á sviði menningar-, íþrótta-, æskulýðs-, tómstunda- eða mannúðarmála.
Hér er sótt um rafrænt í gegnum íbúagátt Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði. Umsóknarfrestur er til og með 8. september 2019. Umsækjendum er bent á að kynna sér úthlutunarreglur, sem nálgast má hér.