Sundlaugin á Jaðarsbökkum lokuð fram á mánudag
09.12.2020
Ágætu bæjarbúar!
Sundlaugin á Jaðarsbökkum opnar aftur mánudaginn 14. desember á hefðbundnum opnunartíma.
Meðan á lokun sundlaugarinnar hefur staðið hefur verið unnið að endurbótum á gangi og búningsklefum. Staðan á verkinu er þannig að ekki er hægt að opna sundlaugina fyrr en á mánudaginn 14. des.
Opnunartími á virkum dögum kl. 06:00-21:00 og frá 9:00-18:00 um helgar.