Þverun Akrafjallsvegar við Litlu Fellsöxl vegna vinnu við hitaveituæð
09.03.2020
Framkvæmdir
Mánudaginn 9. mars klukkan 20:00 verður Akrafjallsvegi lokað vegna vinnu á endurnýjun aðveitu frá Deildartungu, umferð verður beint suður með Akrafjalli á meðan framkvæmdir standa yfir.
Vinna mun hefjast mánudaginn 9. mars klukkan 20:00 og stendur fram á þriðjudaginn 10. mars til klukkan 20:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Merkingar áætlun er sýnd hér fyrir ofan.