Fara í efni  

Undirritun verksamnings um niðurrif mannvirkja á Sementsreit

Verksamningur um niðurrif mannvirkja á Sementsreit var undirritaður í dag þann 5. desember. Tólf tilboð bárust í verkið og var ákveðið að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Work North en tilboð þeirra hljóðaði upp á um það bil 175 m.kr. Verkkaupi er Akraneskaupstaður.

Verkáætlun gengur út á að niðurrif verði í tveimur áföngum frá Suðurgötu/Mánabraut að Faxabraut. Hinsvegar verða mannvirki sem ekki koma til rifa strax skoðuð m.t.t. þess að lágmarka fokhættu. Niðurrif felst í niðurrifi allra mannvirkja á reitnum utan eftirfarandi mannvirkja:

  • Sementssílóa við höfnina
  • Pökkunarhúsi er tengist sementssílóunum
  • Skrifstofuhúsnæði við Mánabraut 20
  • Rafmagns og vélaverkstæði
  • Sementsstrompur
  • Steyptir veggir í sandgryfju

Framkvæmdir munu hefjast á næstu dögum og skal verkinu vera að fullu lokið, eigi síðar en 20. október 2018. Stefnt er að dreifa nánari upplýsingum um framkvæmdina til íbúa á svæðinu er standa næst henni.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00