Viðhaldsdagar í íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum
08.08.2017
Vegna árlegs viðhalds íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum verður lokað í Jaðarsbakkalaug frá mánudeginum 14. ágúst til föstudagsins 18. ágúst. Jaðarsbakkalaug opnar aftur laugardaginn 19. ágúst.
Opið verður í þreksalinn frá mánudeginum 14. ágúst til miðvikudagsins 16. ágúst frá kl. 06:15 - 18:00 en lokað fimmtudaginn 17. ágúst og föstudaginn 18. ágúst.
Ekki verður hægt að nota búningsaðstöðu né sturtur á meðan viðhaldi stendur.