Vökudögum lýkur sunnudaginn 6. nóvember
04.11.2016
Undanfarna daga hefur menningarhátíðin Vökudagar farið fram og hefur aðsókn á viðburði verið afar góð. Nú um helgina eru síðustu dagar hátíðarinnar og ýmislegt spennandi á boðstólum. Meðal viðburða um helgina eru tónleikar, kvikmyndasýning, kökuhlaðborð með listfenglegu ívafi, bókmenntaganga, sýning og sala á handverki og listviðburður mæðgina í heimahúsi. Fjölmargar listsýningar eru í gangi um allan bæ, má þar meðal annars nefna:
- Ljósmyndasýningar í; Akranesvita, Tónlistarskóla Akraness, rými við hlið Krónunnar og á hjúkrunar og dvalarheimilinu Höfða.
- Myndlistarsýningar á; Brekkubraut 1, Café Kaja, Gallerí Bjarni Þór, HVE, Höfða, Skökkinni og Smiðjuvöllum 32.
- Aðrar listsýningar í: Guðnýjarstofu, Garðakaffi, Bókasafni Akraness, í matsal Sementsverksmiðjunnar og í Pennanum-Eymundsson
Upplýsingar um opnunartíma einstakra sýninga eru hér í viðburðadagatali á heimasíðu Akraneskaupstaðar. Fólki er bent á opnunartími sýninga er mismunandi og ekki opið alla daga á þeim öllum. Hér má skoða myndir sem teknar hafa verið á Vökudögum í ár.