Vinátta í verki - landssöfnun vegna náttúruhamfaranna í Grænlandi
17.07.2017
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 13. júlí sl. að veita kr. 250.000 í söfnunina „Vinátta í verki“ vegna hamfaranna í Grænlandi.
Lesa meira
Bætt og aukin þjónusta við farþega Akranesferjunnar sem gengur á milli Akraness og Reykjavíkur
17.07.2017
Uppfærð frétt: 17. júlí 2017.
Mikill metnaður er í forsvarsmönnum Sæferða og Eimskips sem eru rekstraraðilar Akranesferjunnar að efla þjónustu eftir ábendingar Akraneskaupstaðar sem og þeirra sem hafa nýtt ferjuna eða hafa hug á að nota hana.
Lesa meira
Vegvísar og upplýsingaskilti á Akranesi
15.07.2017
Bæjarráð samþykkti nýlega að setja upp þrjár vegvísa á Akranesi sem og einnig upplýsingaskilti við Akraneshöfn. Fyrsti vegvísinn var vígður föstudaginn 7. júlí síðastliðinn í tengslum við vinabæjarmót Norræna félagsins sem fór fram þá helgi á Akranesi. Vegvísirinn sem er staðsettur á Akratorgi gefur til kynna um...
Lesa meira
Akranesferjan siglir 15. og 16. júlí
14.07.2017
Akranesferjan siglir um komandi helgi, þann 15. og 16. júlí. Þetta er kjörið tækifæri til þess að gera sér góðan dag í Reykjavík eða á Akranesi. Áætlun og verðskrá um helgina er eftirfarandi:
Lesa meira
Vinabæjamót á Akranesi 5.-9. júlí
05.07.2017
Akraneskaupstaður vill koma á framfæri kæru þakklæti til þeirra fjölmörgu Skagamanna sem lögðu sig fram um að gera dvöl norrænna gesta okkar, sem staddir voru hér á vinabæjarmóti 5.- 9. júlí síðastliðinn, sem ánægjulegasta.
Lesa meira
Umferðaröryggisáætlun Akraneskaupstaðar
05.07.2017
Bæjarstjórn Akraness samþykkti nýlega umferðaröryggisáætlun Akraneskaupstaðar. Umferðaröryggisáætlun sveitarfélaga er unnin samkvæmt leiðbeiningum um samræmingu vinnubragða á sveitafélagastigi stjórnsýslunnar um umferðaröryggi. Leiðbeiningar eru byggðar á umferðaröryggisáætlun stjórnvalda frá 2005.
Lesa meira
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfis - 1.áfangi og 2. áfangi
04.07.2017
Skipulagsmál
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkti á fundi 29. júní 2017 breytingar á deiliskipulagi í Skógarhverfi 1.áfangi og að þær yrðu auglýstar skv. 41. gr. sbr. 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Lesa meira
Sigurður Heiðar er Rauðhærðasti Íslendingurinn 2017
01.07.2017
Margt var um manninn á viðburðum Írskra daga víða um kaupstaðinn í dag. Einn af hápunktum hátíðahaldanna er val á Rauðhærðasta Íslendingnum 2017 og kom það í hlut Sigurðs Heiðars Valgeirssonar frá Grundarfirði að þessu sinni. Sigurður, sem er 15 ára gamall, hefur áður tekið þátt í keppninni en þá var hann aðeins tveggja eða þriggja ára. Það voru þær Stefanía Sigurðardóttir og Inga Hrönn Óttarsdóttir frá hárgreiðslustofunni Mozart sem höfðu það vandasama hlutverk að velja úr fríðum hópi rauðhærðra.
Lesa meira
Áætlunarferðir Akranesferjunnar á Írskum dögum
29.06.2017
Líkt og flestum Skagamönnum er kunnugt um fara hinir margrómuðu Írsku dagar fram um helgina á Akranesi. Af því tilefni verða aukaferðir í boði með Akranesferjunni og má sjá áætlun og verðskrá hér fyrir neðan. Tilvalið tækifæri fyrir borgarbúa og aðra gesti að skella sér á Skagann og njóta frábærrar
Lesa meira
Írskir dagar voru settir í dag
28.06.2017
Setning Írskra daga 2017 fór fram í blíðviðri við Akratorg fyrr í dag. Setningin fólst í afhjúpun á verki GAGA Skorradal sem er tileinkað Írskum dögum en um risastóra indíána hárkollu í fánalitum Írlands var að ræða.
Þegar Gerður (GAGA Skorradal) er spurð út í verkið segir hún "Fáninn er mikið tákn og segir til um hverrar þjóðar hver og einn er og nú eru Írskir dagar á Akranesi og langaði mig til að Akraneskaupstaður fengi verk eftir mig". Gerður býr húfurnar einnig til í stærð sem henta vel sem höfuðfat og eru þær til sölu hjá henni að Smiðjuvöllum á Akranesi.
Lesa meira