Bæjarstjórnarfundur 22. mars
18.03.2016
1230. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 22. mars kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Lesa meira
Spiladagar á Bókasafni Akraness
18.03.2016
Bókasafn Akraness efnir til spiladaga í Dymbilviku 21. til 23. mars. Það verða nokkur skemmtileg borðspil í boði fyrir krakka og alla fjölskylduna.
Lesa meira
Örnefnaganga á Írskum vetrardögum
17.03.2016
Landmælingar Íslands stóðu fyrir örnefnagöngu í blíðskaparveðri í dag í tilefni af Írskum vetrardögum. Það voru þau Rannveig Benediktsdóttir, Guðni Hannesson og Eydís Finnbogadóttir sem miðluðu af fróðleik sínum. Upphaf göngunnar var á Aggapalli þar sem sagðar voru sögur af Langasandi, Þjótnum, Jaðarsbökkum að ógleymdum Agga, sem pallurinn er nefndur eftir.
Lesa meira
Opnir viðtalstímar á bæjarskrifstofunni
16.03.2016
Akraneskaupstaður vekur athygli á eftirfarandi viðtalstímum hjá bæjarstjóra, sviðsstjórum, garðyrkjustjóra og byggingarfulltrúa. Viðtalspantanir fara fram rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða símleiðis í þjónustuveri kaupstaðarins í síma 433 1000. Ennfremur er hægt að senda inn fyrirspurnir / ábendingar á tilgreind netföng.
Lesa meira
Dekkjakurl verður fjarlægt
11.03.2016
Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi sínum í gær þann 10. mars að dekkjakurl á sparkvöllum við Grundaskóla og Brekkubæjarskóla verði fjarlægt á árinu 2016. Var skipulags- og umhverfisráði falið að gera tillögu að breytingu í framkvæmda- og fjárfestingaráætlun með tilliti til þess.
Lesa meira
Málefni almannavarna rædd á Akranesi
10.03.2016
Fyrsti fundur almannavarnarnefndar Akraness á árinu 2016 var haldinn þriðjudaginn 8. mars síðastliðinn á bæjarskrifstofunni á Akranesi. Á fundinum voru viðstaddir, Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Vesturlandi sem er jafnframt formaður nefndarinnar, Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri, Jón S. Ólason...
Lesa meira
Viltu taka þátt í að móta Menningarstefnu Vesturlands ?
10.03.2016
Á næstu dögum verða haldnir fundir víða um Vesturland þar sem íbúum er boðið að taka þátt og hafa mótandi áhrif á gerð Menningarstefnu Vesturlands með þátttöku í vinnuhópum á fundunum.
Lesa meira
Umsóknir um stöðu skólastjóra Grundaskóla
07.03.2016
Akraneskaupstaðar auglýsti starf skólastjóra Grundaskóla í byrjun febrúar. Umsóknarfrestur rann út þann 29. febrúar síðastliðinn og voru umsækjendur sex talsins en einn umsækjandi dró umsóknina tilbaka. Ráðningarferli stendur yfir um þessar mundir en það er ráðningarstofan Capacent sem sér um úrvinnslu umsókna í samstarfi við bæjaryfirvöld.
Lesa meira
Írskir vetrardagar
07.03.2016
Írskir vetrardagar verða haldnir 17. til 20. mars næstkomandi. Menningar- og safnanefnd samþykkti á s.l. ári að undirbúa nýjung í menningarlífi Akraness og halda Írska vetrardaga. Markmiðið er að tengjast Írlandi enn frekar, meðal annars í gegnum bókmenntir og tónlist. Fimmtudagurinn 17. mars, dagur heilags ...
Lesa meira
Bæjarstjórnarfundur 8. mars
07.03.2016
1229. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 8. mars kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Lesa meira