Fara í efni  

Dalbraut 2 og Stillholt 23 - skipulagslýsing breyting á deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akraness samþykkti þann 28. maí 2024 lýsingu vegna fyrirhugaðar breytingar á deiliskipulagi Dalbrautarreits vegna Stillholts 23 og Dalbrautar 2 skv. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin gerir ráð fyrir nýju fjölbýli ásamt verslun og þjónustu á Dalbraut 2 og Stillholti 23, en í Aðalskipulagi Akraness 2021-2033 er svæðið skilgreint sem landnotkunarsvæði ÍB-141. Gert er ráð fyrir byggingu sem stallar sig frá fjórum- og upp í tíu hæðir, ásamt bílakjallara. Í skipulagslýsingu eru upplýsingar um forsendur, stefnu, frumhugmyndir og fyrirhugað skipulagsferli.

Hægt er að nálgast lýsinguna hér, í þjónustuveri kaupstaðarins að Dalbraut 4 og inn á skipulagsgátt

www.skipulagsgatt.is/. Ábendingar varðandi skipulagslýsingu eiga að vera skriflegar og berast fyrir 27. júní 2024 í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is/.

Skipulagsfulltrúi Akraneskaupstaðar


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00