Akraneskaupstaður og Golfklúbburinn Leynir undirrita framkvæmdarsamning
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri og Guðmundur Sigvaldason framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis undirrituðu framkvæmdarsamning þann 15. mars síðastliðinn vegna Íslandsmótsins í golfi sem haldið verður á Akranesi í sumar. Undirritunin átti sér stað síðastliðinn laugardag en Leynir hélt upp á 50 ára afmæli sitt með afmælisveislu í golfskálanum.
Með samningi þessum vill Akraneskaupstaður styðja við undirbúning mótsins en það er stærsti viðburður sumarsins á meðal bestu kylfinga landsins og mikið lagt upp úr umgjörð mótsins á allan máta. Samningurinn felur í sér endurbætur á göngustígum, teigum og mannvirkjum, þurrkun vallarins og uppsetning á búnaði. Framlag Akraneskaupstaðar samkvæmt samningnum hljóðar upp á 2 milljónir króna. Árlega veitir Akraneskaupstaður golfklúbbnum rekstrarstyrk sem nemur rúmlega 8 milljónum króna auk þess sem þriggja ára samningur er í gildi vegna byggingar vélaskemmu og hefur framlag Akraneskaupstaðar numið 8 milljónum króna á ári í þrjú ár. Ljósmyndir með fréttinni eru í eigu golfklúbbsins.
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015