Ályktun bæjarstjórnar Akraness um stórfellda uppbyggingu samgöngukerfisins með álagningu flýtigjalda
Á fundi bæjarstjórnar Akraness þann 11. desember var svohljóðandi bókun lögð fram og samþykkt einróma:
„Bæjarstjórn Akraness fagnar þeirri viðhorfsbreytingu sem orðið hefur á Alþingi Íslendinga til stórfelldra samgöngubóta sem fyrirhugaðar eru á næstu árum og verða fjármagnaðar með álagningu flýtigjalda. Akurnesingar hafa verið í fararbroddi í þessari hugsun á Íslandi í yfir 20 ár eins og bygging og rekstur Hvalfjarðarganga eru góður vitnisburður um. Bæjarstjórn Akraness vill minna á að hjá starfsfólki Spalar á Akranesi, sem annaðist daglegan rekstur Hvalfjarðarganga, hefur myndast mikil þekking á gjaldtöku af notkun samgöngumannvirkja og vill bæjarstjórn Akraness hvetja Sigurð Inga Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til þess að nýta þessa yfirgripsmiklu þekkingu starfsfólks Spalar við undirbúning og ákvörðun um staðsetningu og umsýslu með innheimtu flýtigjalda á Íslandi.“
Ályktunin hefur verið send samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis og þingmönnum Norðvesturkjördæmis.
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015