Bókun bæjarráðs Akraness í tenglsum við skýrslu starfshóps um Sundabraut
Bæjarráð Akraness fjallaði á fundi sínum þann 3. júlí 2019 um skýrslu starfshóps um Sundabraut. En starfshópur um Sundabraut hefur lokið störfum og skilað skýrslu til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Sundabraut hefur verið til skoðunar um árabil og hafa bæjaryfirvöld á Akranesi og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi ítrekað ályktað um mikilvægi hennar því Sundabraut mun án efa bæta umferð til og frá höfuðborginni og auka umferðaröryggi.
Bókun bæjarráðs var svohljóðandi:
„Bæjarráð Akraness fagnar ummælum samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um að raunhæft sé að bjóða út framkvæmdir við Sundabraut á þessu kjörtímabili og að framkvæmdir geti hafist á næstu þremur til fjórum árum.
Bæjarráð Akraness hvetur samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóahafnir og aðra hlutaðeigandi aðila til að vinna ötullega að þessari brýnu samgöngubót."
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015