Bókun bæjarráðs Akraness vegna ástands og tvöföldunar Vesturlandsvegar á Kjalarnesi
Bæjarráð Akraness fjallaði á fundi sínum þann 27. febrúar 2020 um skýrslu frummats Vegagerðarinnar um mat á umhverfisáhrifum vegna breikkunnar Vesturlandsvegar um Kjalarnes. Um er að ræða breikkun á 9 km kafla milli Varmhóla og vegamóta Hvalfjarðarvegar. Frummatsskýrsla Vegagerðarinnar er opin fyrir alla og geta allir lagt fram athugasemdir. Frummatsskýrslan er aðgengileg hér.
Bókun bæjarráðs Akraness var svohljóðandi:
"Bæjarráð Akraness fagnar niðurstöðu frummatsskýrslu Vegagerðarinnar um mat á umhverfisáhrifum vegna vegagerðar um Kjalarnes en þar segir að á heildina litið verði ekki umtalsverð umhverfisáhrif af framkvæmdinni.
Bæjarráð krefst þess að fjárveitingar vegna vegaframkvæmda við Vesturlandsveg séu í takt við samþykkta samgönguáætlun og að framkvæmdir hefjist á þessu ári. Bæjarráð áréttar mikilvægi forgangsröðunar samkvæmt samþykktri samgönguáætlun Vesturlands þar sem áhersla er lögð á lagningu Sundabrautar, tvöföldun vegar á Kjalarnesi og tvöföldun Hvalfjarðarganga.
Ennfremur minnir bæjarráð samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á fyrri orði hans um að raunhæft sé að bjóða út framkvæmdir á Sundabraut á þessu kjörtímabili og að framkvæmdir geti hafist á næstu þremur til fjórum árum. Bæjarráð Akraness ítrekar að orð skulu standa og mun halda áfram að fylgja þessu máli fast eftir.
Bókun bæjarráðs verður komið á framfæri við samgönguyfirvöld og þingmenn Norðvesturkjördæmis, Suðvesturkjördæmis og Reykjavíkurkjördæma.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda umsögn um frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum vegna breikkunar Vesturlandsvegar til Vegagerðarinnar."
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember