Fara í efni  

Staða skólastjóra Brekkubæjarskóla laus til umsóknar

Akraneskaupstaður leitar að umbótasinnuðum og farsælum leiðtoga til að leiða metnaðarfullt skólastarf í öflugum grunnskóla.

Hér má sjá auglýsinguna á alfred.is

Brekkubæjarskóli er heildstæður skóli með 470 nemendur í 1. – 10. bekk og hefur náð góðum árangri í inngildandi skólastarfi og heildstæðri nálgun þar sem lögð er mikil áhersla á að hver nemandi fái að nýta hæfileika sína.

Brekkubæjarskóli er teymiskennsluskóli með áherslu á þverfaglega teymisvinnu. Gott orðspor fer af þessari vinnu og hafa fjölmargir skólar á Íslandi fengið kynningu á þessum vinnubrögðum.

Brekkubæjarskóli er Byrjendalæsisskóli og er lögð áhersla á fjölbreyttar aðferðir við nám og kennslu í öllum skólanum. Öflugt tónlistarstarf hefur einkennt skólann um langt árabil og lögð er áhersla á skapandi skólastarf. Á þriggja ára fresti setur skólinn upp stórt leikrit þar sem allir nemendur á unglingastigi fá tækifæri til að taka þátt.

Í Brekkubæjarskóla er virkt nemendalýðræði og vinnur skólinn markvisst að því að skapa leiðir fyrir nemendur til að hafa áhrif í öllu skólastarfi. Akraneskaupstaður vinnu að því að verða barnvænt sveitarfélag með innleiðingu Barnasáttmálans og á sér stað öflug samvinna innan bæjarins um aukna þátttöku barna í ákvörðunum sem varða þau.

Góður og fróður er skólastefna Brekkubæjarskóla og er skýr framtíðarsýn í anda lífsleikni, manngildis og hugmynda um að til þess að ná árangri í skólastarfi þurfi að hlúa að vellíðan og starfsánægju bæði nemenda og starfsmanna skólans. Markviss vinna er með dygðir þvert á allar námsgreinar er hluti af skólastefnunni.

Umfangsmiklar lagfæringar og breytingar hafa verið gerðar á húsnæði skólans og verður þeim lokið í janúar 2026. Þá verða til að mynda teknar í notkun nýjar kennslustofur fyrir list- og verkgreinar sem eru hannaðar í takt við nútímakennsluhætti.

Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari og greinagerð um framtíðarsýn umsækjanda á starfi skólastjóra Brekkubæjarskóla.

Umsóknafrestur er til 30. mars 2025 - Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Skólastjórafélags Íslands.

Nánari upplýsingar veitir Dagný Hauksdóttir, sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs sími 433 1000. Netfang: dagnyh@akranes.is

Hér má sjá auglýsinguna á alfred.is


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00