Framkvæmda fréttir – Brekkubæjarskóli (apríl.2024)
Brekkubæjarskóli – Endurnýjun 1. Hæðar.
Verktaki: SF smiðir.
Arkitekt hússins: Andrúm arkitektar ehf.
Verkfræðihönnun: Víðsjá ehf.
Á þessum myndum sjáið þið hvar nýtt andyri skólans mun rýsa (Myndir frá því í byrjun apríl 2024).
Umfang framkvæmdarinnar er umtalsvert, hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir verkið:
Um er að ræða endurgerð 1 hæðar í Brekkubæjarskóla um 2.100 fm auk kjallararýmis og nokkurra rýma á 2. og 3. hæð. Verkið er áfangaskipt í tvo áfanga.
Fyrri áfanga á að vera lokið 31. Des ´24 og áætlað er að seinni áfangi ljúki 31.des ´25
Í fyrsta áfanga, sem er um 1.100 fm, er verkefnið:
- Endurnýja kennslueldhús á núverandi stað og útbúin rými fyrir geymslu og kæla ásamt nýju inntaksrými fyrir vatnsúðakerfi. Breytingar fela í sér að nýta að mestu steypta veggi en bæta við gipsveggjum, glerveggjum, leggja nýjar lagnir og loftræsingu, rafmagn og loftaefni ásamt lýsingu auk gólfefna.
- Eldri snyrtingar verða endurnýjaðar ásamt eldri lyftu sem verður stækkuð í leiðinni.
- Nýbygging anddyris (ljósbláa svæðið) hluti af þessum fyrsta áfanga.
- Innrétta rými fyrir sérkennslustofur, sálfræðingur, námsráðgjafi og hjúkrun og tónmennt.
Í öðrum áfanga, sem er um 1.000 fm, er verkefnið:
- Endurnýja samkomusal ásamt því að setja nýjan glugga aftan við sviðið, að breikka tröppur niður í salinn og útbúa rými fyrir lyftu.
- Mötuneytiseldhús er endurnýjað en tæki að mestu notuð áfram.
- Þar sem áður voru tónlistarstofa, námsráðgjafar og sálfræðingur koma nú í þessum áfanga smíðastofa, myndmennt og hannyrðir ásamt nýjum snyrtingum á eldri anddyrisgangi.
- Eldri setustofa nemenda er sameinuð nýju anddyri með tilheyrandi breytingum. Breytingar fela í sér að nýta að mestu steypta veggi en bæta við gipsveggjum, glerveggjum, leggja nýjar lagnir og loftræstingu, rafmagn og loftaefni ásamt lýsingu auk gólfefna.
Á þessum myndum sjáið þið þá miklu vinnu sem farið hefur verið í undirbúning fyrir nýtt kennslueldhús (Myndir frá því í byrjun febrúar 2024).
Hvar er framkvæmdin stödd í dag:
Verkið hófst í byrjun árs og er vinna við áfanga 1 nú í fullum gangi. Ásigkomulag á elsta hluta skólans (byggingarár 1949) var orðið mjög slæmt, byggingaraðferðir þess tíma voru aðrar en í dag og töluvert var um rakaskemmdir í grunni í þeim hluta byggingarinnar.
- Búið er að steypa sökkla og undirbúa plötu fyrir nýtt andyri.
- Gömlu stigagati var lokað
- Búið er að lækka gólfið í gömlu smíðastofunni (Sem verður tónmennt).
- Mikil vinna hefur farið í lagfæringar á gömlum rakaskemmdum og fyrirbyggjandi aðgerðir.
- Reistir hafa verið nýjir innveggir.
- Skólplagnir hafa verið endurnýjaðar og drenlagnir lagðar meðfram húsinu.
- Vinna er í gangi við endurnýjun á raflögnum.
- Kennslueldhús gert fokhelt og gólfhitalagnir lagðar.
- Klósettkjarnar gerðir fokheldir.
- Mikil brotvinna hefur átt sér stað vegna stækkunar á veggjum, hurðagötum og gerð lagnagata.
Á þessum myndum sjáið þið gömlu smíðastofuna þar sem verið er að byrja að lækka gólfið (Myndir frá því í byrjun febrúar 2024).
Á þessum myndum sjáið þið hvernig gólfið hefur verið lækkað (Myndir frá því í byrjun apríl 2024).
Á þessum myndum sjáið þið hvernig klósettkjarnar hafa verið gerðir fokheldir (Myndir frá því í febrúar 2024).
Framundan:
- Áframhaldandi uppbygging, uppsetning innveggja í tónmenntastofu.
- Lagnavinna raf-, pípu-, og loftræsikerfis á hæðinni (áfangi 1).
- Uppsteypa á nýju anddyri fyrir nemendur skólans.
Hér má sjá grunnteikningu af Brekkubæjarskóla.
A-AT-01 (4).pdf by Vera Líndal
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember