Fara í efni  

Framkvæmda fréttir - Brekkubæjarskóli (september 2024)

Með fréttaseríunni ,,Framkvæmda fréttir
Með fréttaseríunni ,,Framkvæmda fréttir" vill Akraneskaupstaður upplýsa íbúa um yfirstandandi framkvæmdir bæjarfélagsins. Það er af nægu að taka og því áhugavert fyrir íbúa að kynnast ferlinu sem og sjá framvindu mála.

Í þessari fréttaseríu vill Akraneskaupstaður upplýsa íbúa um yfirstandandi framkvæmdir bæjarfélagsins. Það er af nægu að taka og því áhugavert fyrir íbúa að kynnast ferlinu sem og sjá framvindu mála.

Hér má sjá eldri frétt um framkvæmdum í Brekkubæjarskóla frá því i apríl.

Brekkubæjarskóli – Endurnýjun 1. Hæðar.

Verktaki: SF smiðir.

Arkitekt hússins: Andrúm arkitektar ehf.

Verkfræðihönnun: Víðsjá ehf.

Hér má sjá mynd innan úr kennslueldhúsi sem opnar eftir helgi.

Umfang framkvæmdarinnar er umtalsvert, hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir verkið:

Um er að ræða endurgerð 1 hæðar í Brekkubæjarskóla um 2.100 fm auk kjallararýmis og nokkurra rýma á 2. og 3. hæð. Verkið er áfangaskipt í tvo áfanga. Fyrri áfanga á að vera lokið 31. Des ´24 og áætlað er að seinni áfangi ljúki 31.des ´25

Í fyrsta áfanga, sem er um 1.100 fm, er verkefnið:

  • Endurnýja kennslueldhús á núverandi stað og útbúin rými fyrir geymslu og kæla ásamt nýju inntaksrými fyrir vatnsúðakerfi.
  • Eldri snyrtingar verða endurnýjaðar ásamt eldri lyftu sem verður stækkuð í leiðinni.
  • Nýbygging anddyris
  • Innrétta rými fyrir sérkennslustofur, sálfræðingur, námsráðgjafi og hjúkrun og tónmennt. Breytingar fela í sér að nýta að mestu steypta veggi en bæta við gipsveggjum, glerveggjum, leggja nýjar lagnir og loftræsingu, rafmagn og loftaefni ásamt lýsingu auk gólfefna.

Í öðrum áfanga, sem er um 1.000 fm, er verkefnið:

  • Endurnýja samkomusal ásamt því að setja nýjan glugga aftan við sviðið, að breikka tröppur niður í salinn og útbúa rými fyrir lyftu.
  • Mötuneytiseldhús er endurnýjað en tæki að mestu notuð áfram.
  • Þar sem áður voru tónlistarstofa, námsráðgjafar og sálfræðingur koma nú í þessum áfanga smíðastofa, myndmennt og hannyrðir ásamt nýjum snyrtingum á eldri anddyrisgangi.
  • Eldri setustofa nemenda er sameinuð nýju anddyri með tilheyrandi breytingum. Breytingar fela í sér að nýta að mestu steypta veggi en bæta við gipsveggjum, glerveggjum, leggja nýjar lagnir og loftræstingu, rafmagn og loftaefni ásamt lýsingu auk gólfefna.

Verkið hófst í byrjun árs og er vinna við áfanga 1 langt komin.

Hér má sjá mynd af lyftuhúsi sem er í vinnslu.

Hvar er framkvæmdin stödd í dag:

Vinna við fyrsta áfanga er í fullum gangi og er komin vel á veg.

  • Kennslueldhús er á lokametrunum og verður tekið í notkun eftir helgi.
  • Steypuvinnu í kringum nýtt anddyri er að mestu lokið.
  • Búið er að steypa upp nýtt lyftuhús innanhús, sett verður ný lyfta sem mun uppfylla nútíma kröfur um aðgengi.
  • Búið er að saga niður veggi og stálbitar settir upp.
  • Allir innveggir hafa verið reistir og er málningarvinna vel á veg komin.
  • Búið er að endurnýja glugga í nýrri tónmennt, sem og á þriðju hæð í sömu álmu.
  • Útveggir hafa verið endureinangraðir og múrun er lokið.
  • Lagnavinna er langt komin og eru allir loftræsistokkar komnir upp.

Framundan:

  • Á næstunni verður glerkerfi sett upp á nýju anddyri.
  • Innanhús framkvæmdir í áfanga 1 munu halda áfram en nú er grófvinnu innanhús lokið í þessum áfanga.
  • Vinna við endurnýjun á salerniskjarna heldur áfram, en fljótlega verður byrjað að flísaleggja þau rými.
  • Unnið verður áfram í raflögnum og uppsetningu ljósa
  • Vinna við uppsetningu nýrra ofna
  • Gólf verða dúkalögð og loftaklæðningar settar upp.
  • Innihurðar og glerveggir innanhús verða sett upp.

Hér má sjá mynd af framkvæmdum á nýju anddyri.

   

Hér má sjá myndir innan úr nýrri tónmenntarstofu.

Hér má já mynd af rýmum fyrir stoðþjónustu.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00