Jólaljósin tendruð í dag
Jólaljósin á Akratorgi voru tendruð í dag, laugardaginn 28. nóvember við hátíðlega athöfn. Lúðrasveit Tónlistarskólans á Akranesi spilaði nokkur lög í upphafi og síðan tóku nemendur skólakórs Grundaskóla við og sungu þau nokkur lög undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur áður en kveikt var á trénu.
Það voru systurnar Högna og Laila Þóroddsdætur sem tendruðu ljósin ásamt bæjarstjóranum, Regínu Ásvaldsdóttur. Jólatréð á Akratorgi er 20 ára sitkagrenitré sem var gróðursett í Álfhólsskógi fyrir 20 árum á vegum skógræktarfélags Skilmannahrepps. Bjarni Þóroddsson frá Bekanstöðum, afi Högnu og Lailu gróðursetti tréð. Álfhólsskógur er í Hvalfjarðarsveit, norðan megin við Akrafjall.
Þegar ljósin höfðu verið kveikt, birtist Grýla með nokkrum jólasveinum og sögðu þau frá ferðum sínum og tóku nokkur jólalög.
Félagar úr Skátafélagi Akraness veittu heitt kakó í boði Akraneskaupstaðar á meðan á dagskrá stóð á Akratorgi.
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015