Fara í efni  

Langisandur viðurkenndur sem Bláfánaströnd í tólfta skiptið

Bláfánanum verður flaggað í 12 skiptið á Langasandi þann 29. maí 2024 klukkan 10:00. Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisvottun sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku fyrir árangursríkt starf í umhverfismálum. Meginmarkmið verkefnisins er að vernda lífríki haf- og strandsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er tákn um góða frammistöðu í umhverfismálum og bætir ímynd og ásýnd rekstraraðila þar sem hann blaktir við hún. Bláfáninn er veittur þeim baðströndum sem uppfylla ákveðin skilyrði sem lúta að eftirfarandi þáttum; umhverfisfræðsla og upplýsingagjöf, vatnsgæði, umhverfisstjórnun, öryggi og þjónusta. Vottunarstofan Tún er umsjónaraðili Bláfánans á Íslandi, hægt er að finna frekari upplýsingar um Bláfánann hér.

Þess má geta að á nýrri fjörusíðu á www.skagalif.is má finna  upplýsingar um Langasand en vefurinn er hannaður í tilefni af Barnamenningarhátíð 2024.

Við hvetjum öll áhugasöm til að mæta og fagna með okkur við fánastöngina þegar Bláfánanum verður flaggað við Langasandinn okkar góða.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00