Rýmri opnun Bókasafni Akraness
Bókasafn Akraness mun taka upp þá nýbreytni á nýju ári að opna safnið kl. 10. 00 virka daga og bjóða upp á Opnun án þjónustu, þar til safnið opnar á hefðbundnum tíma kl. 12:00.
Á síðasta ári var starfsemi safnsins endurskoðuð og hugað að framtíð bókasafnsins. Efnt var til vinnufundar undir stjórn sérfræðinga frá Advanina með starfsfólki bókasafnsins, menningar- og safnanefnd, forstöðumanni menningar- og safnanefndar og fulltrúum íbúa á Akranesi. Unnið var út frá hugmyndafræði sem nefnist Design Thinking, en þar gegna notendur lykilhlutverki, hvort sem það er í þróun þjónustu eða innviða.
Eitt af því sem kom fram á vinnufundinum með íbúum var að safnið mætti opna fyrr að deginum og almennt mætti afgreiðslutíminn vera mun rýmri en hann er í dag.
Rýmri opnun er ekki að öllu leyti nýlunda á Bókasafni Akraness, því allt frá því að safnið tók til starfa á Dalbraut 1 árið 2009, hefur safnið verið opið að morgni fyrir ýmsa hópa, svo sem frá leikskólum bæjarins og grunnskólum. Foreldramorgnar eru á fimmtudögum og greiningarfundir Ljósmyndasafnsins eru á miðvikudögum.
Með rýmri opnun bjóðum við árrisula gestir velkomna í safnið að skoða bækur, tímarit og dagblöð. Fá sér kaffisopa, nota þráðlaust net, komast í tölvu, taka bækur að láni í sjálfsafgreiðslu og skila. Í safninu er ein sjálfsafgreiðsluvél og einnig leitartölva þar sem gestir geta flett upp safnkosti.
Svöfusalur (lessalur) opnar áfram kl. 8:00 virka daga og er opinn til kl. 18:00. Gegnið inn að norðanverðu. Allir námsmenn hafa aðgang að Svöfusal meðan safnið er opið.
Auk þess geta námsmenn sótt um aðgangskort og haft ótakmarkað aðgengi að Svöfusal. Fjöldatakmörkun er á þessu aðgengi.
Fyrirkomulag af þessu tagi, Opnun án þjónustu, þekkist víða annars staðar á Norðurlöndum og eins hefur það reynst vel í Bókasafni Kópavogs, Bókasafni Mosfellsbæjar og Amtsbókasafninu á Akureyri.
Vakin er athygli á þessari breytingu, sem hefur þegar tekið gildi og er fólk hvatt til að kynna sér fjölbreytta starfsemi bókasafnsins. Við viljum einnig minna á föstu viðburðina okkar sem eru eftirfarandi:
- Prjónakaffi á mánudögum kl. 14
- Heklhópur annan hvern miðvikudag kl.15
- Foreldramorgnar á fimmtudögum kl. 10
- Karlaspjall á föstudögum kl. 12
- Fjölskyldudagar á laugardögum
Verið velkomin á Bókasafn Akraness.
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember