Safnað fyrir Malaví í Grundaskóla
11.12.2017
Nú á dögunum var haldinn hinn árlegi Malaví markaður Grundaskóla. Þar koma nemendur og starfsfólk skólans saman og selja alls konar muni sem þau hafa búið til og rennur öll innkoma af markaðnum óskipt í söfnun fyrir fátæk börn í Malaví. Nemendur og starfsfólk Grundaskóla hafa safnað fyrir fátækum börnum í Malaví í rúman áratug og hefur m.a. Rauði krossinn í Malaví og á Íslandi veitt Grundaskóla sérstaka viðurkenningu fyrir þetta frábæra verkefni sem hefur verið nefnt „Að breyta krónum í gull“.
Í ár söfnuðust samtals kr. 657.277 sem Grundarskóli hefur fært Rauða krossi Íslands. Peningarnir verða nýttir til að styðja við fátæk börn í Chiradzulu og Mwanza í Malaví til þess að þau komist í skóla.
Fréttir
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015