Jaðarsbakkar: Skráning á vinnufund íbúa og dagskrá
Vinnufundur með íbúum á vegum skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar verður haldin fimmtudaginn 22. febrúar kl. 17:00-19:00 að Garðavöllum.
Dagskrá:
- Upprifjun á stefnu sem gerð var fyrir svæðið og ætlunin er að endurspeglist í skipulagi þess.
- Basalt arkitektar fara yfir frumhönnun sína fyrir svæðið, ásamt nánari útfærslu eins og möguleika á snúningi vallar og umferð um svæðið.
- Íbúar vinna í nokkrum hópum á borðum með mismundani umræðuefni þar sem borðstjóri hefur umsjón með umræðum. Bæjarfulltrúar, ráðsmenn, starfsmenn Akraneskaupstaðar og fulltrúar frá Basalt arkitektum verða á staðnum og svara spurningum eftir þörfum. Markmiðið er að fanga skoðanir og ábendingar íbúa varðandi frumhönnun Basalt arkitekta þar sem umræðuefnin eru eftirfarandi:
- Íþróttasvæðið
- Sundlaug
- Aðgengi á svæðinu
- Hótel, heilsulind
- Græna svæðið og Langisandur
- Unnin verður samantekt úr því efni sem verður til á fundinum og birt á heimasíðu Akraneskaupstaðar.
Markmiðið með fundinum er að fá veganesti frá íbúum inn í yfirstandandi skipulagsvinnu á Jaðarsbökkum sem unnin er í samstarfi við Basalt arkitekta. Fyrirhugað er að reisa á svæðinu hótel og baðlón ásamt því að skipuleggja það til lengri tíma með áherslu á íþróttir, heilsu og aðgengi fyrir öll. Nánar er hægt að lesa um fyrirhugaða uppbyggingu á Jaðarsbökkum hér. Skoða má hugmyndir Basalt arkitekta fyrir svæðið hér. og gögn um stefnumótunarvinnuna hér.
Vinnufundurinn er opin öllum íbúum á Akranesi. Börn eru velkomin en gert er ráð fyrir að yngri en 15 ára séu í fylgd með fullorðnum. Til að skipulagning fundarins takist sem best er óskað eftir að fólk skrái þátttöku fyrir hádegi miðvikudaginn 21. febrúar í rafræna skráningarformið hér fyrir neðan. Opið verður fyrir skráningu fram að fundi.
Skráningarform fyrir vinnufund: https://forms.office.com/e/t0X35M8c3X
Einnig er hægt að tilkynna þátttöku með því að hringja í síma 433-1000 eða senda póst á akranes@akranes.is.
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember