Tjaldsvæðið á Akranesi opnaði formlega um síðustu helgi
Tjaldsvæðið á Akranesi við Kalmansvík opnaði formlega um síðustu helgi. Það voru rúmlega 30 gestir sem heimsóttu tjaldsvæðið þessa fyrstu opnunarhelgi og eru margir þeirra fastagestir. Starfsfólk verður með viðveru á tjaldsvæðinu í sumar a.m.k. tvisvar á dag til að sinna þjónustu á svæðinu sem felur í sér ræstingar og innheimtu.
Farið hefur verið í úrbætur á tjaldsvæðinu og meðal annars skipt um dúka á salernunum, klósettkassa og settar nýjar sturtur. Að utan var salernishúsið málað og verið er að vinna að lagfæringu á pallinum fyrir framan þjónustuhúsið auk þess sem kantar, gluggar og þakrennur voru málaðar. Í lok maí er stefnt að því að setja upp þjónustuskilti á tjaldsvæðinu sem staðsett verður við bakhlið þjónustuhússins. Vinnuskóli Akraness ásamt garðyrkjustjóra munu jafnframt sjá um að fegra umhverfið með blómum og slætti fljótlega. Leikkastalinn á tjaldsvæðinu verður fjarlægður en hann er kominn til ára sinna og þykir ekki öruggur lengur. Ný leiktæki verða sett á svæðið.
Tjaldsvæðið er opið til 15. september og er hægt að nálgast gjaldskrá tjaldsvæðisins hér.
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015