Umhverfisstefna Akraneskaupstaðar lítur dagsins ljós – óskað eftir umsögnum
Akraneskaupstaður er um þessar mundir að leggja lokahönd á Umhverfisstefnu kaupstaðarins. Mikilvægur þáttur í því er að fá umsagnir frá fagráðum, stýrihópum, íbúum, fyrirtækjum og öðrum hagsmunaaðilum. Opið er fyrir umsagnir til og með 29. nóvember 2020.
Drög að stefnunni má kynna sér rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is/umhverfisstefna en þar má einnig nálgast umsagnareyðublað.
Akraneskaupstaður stefnir að því að gera sveitarfélagið sem vænlegast til búsetu og atvinnurekstrar fyrir núverandi og komandi kynslóðir með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Markmið stefnunnar er að umhverfis- og loftslagsmál verði í forgrunni í almennri stefnumótun sveitarfélagsins. Sveitarfélagið kappkosti jafnframt að sýna gott fordæmi og hvetja íbúa til að bæta frammistöðu sína á þessum sviðum. Lögð verður áhersla á vandað umhverfi með fallegri bæjarmynd sem hefur jákvæð áhrif á lífsgæði íbúa. Akraneskaupstaður vill bæta umgengni við manngert og náttúrulegt umhverfi þannig að íbúum sé sómi af, ásamt því að auka umhverfisvitund bæjarbúa og gera þá meðvitaðri um kosti þess að búa í hreinu og fögru umhverfi. Sveitarfélagið vinnur að stöðugum úrbótum á eigin frammistöðu á öllum sviðum og hefur þess vegna sett sér umhverfisstefnu.
Taktu þátt - hafðu áhrif!
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember