Umhverfisviðurkenning 2015
Umhverfisviðurkenningar voru veittar í blíðskaparveðri á Akratorgi í gær. Einar Brandsson formaður skipulags- og umhverfisráðs bauð gesti velkomna til athafnarinnar og kynnti niðurstöður valnefndar og Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri afhenti viðurkenningarhöfum skilti til að setja utandyra og eplatré í garðinn. Fyrr í sumar skipaði skipulags- og umhverfisráð valnefnd sem kom með tilnefningar til ráðsins í flokkunum: ,,falleg einbýlishúsalóð“, ,,snyrtileg fyrirtækjalóð“, ,,hvatningarverðlaun“ og ,,samfélagsverðlaun“. Í nefndinni voru þau Drífa Gústafsdóttir skipulagsfræðingur, Helena Guttormsdóttir brautarstjóri umhverfisskipulags LBHÍ, Kristbjörg Traustadóttir landslagsarkitekt, Jón Þór Guðmundsson garðyrkjufræðingur og Íris Reynisdóttir garðyrkjustjóri Akraneskaupstaðar.
Í flokknum „falleg einbýlishúsalóð“ fengu þrír eigendur viðurkenningu út frá þrenns konar forsendum; fjölbreyttri nýtingu, gróskumikilli ræktun og tegundafjölbreytileika í trjágróðri. Það voru eigendur að Skólabraut 20, Kirkjubraut 21 og Vogabraut 42 sem fengu viðurkenningu í þessum flokki. Í flokknum „snyrtilegasta fyrirtækjalóðin“ fékk Teigur gistiheimili viðurkenningu. Í flokknum ,,hvatningarverðlaun" fengu eigendur að Melteigi 7 og Suðurgötu 126 viðurkenningar fyrir endurbætur á húsum og lóð og í flokknum ,,samfélagsverðlaun" fengu íbúar á Grenigrund viðurkenningu fyrir að sýna frumkvæði og samstöðu með byggingu grillskála á opnu svæði. Einnig fékk Adam Þór Þorgeirsson eigandi að Háholti 5 viðurkenningu fyrir að hafa sinnt viðhaldi húss og lóðar í gegnum tíðina með miklum sóma.
Akraneskaupstaður óskar viðurkenningarhöfum innilega til hamingju. Hér má skoða glærur sem sýna rökstuðning valnefndar og myndir.
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember