Fara í efni  

Akraneskaupstaður hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2024

Ráðstefna Jafnvægisvogarinnar, Látum eitthvað gerast, jafnrétti er ákvörðun, var haldin við hátíðlega athöfn í gær, 10. október. Akraneskaupstaður hlaut viðurkenningu þriðja árið í röð ásamt 14 öðrum sveitarfélögum, 22 stofnunum og 93 fyrirtækjum.

Jafnvægisvogin er hreyfiátaksverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og er viðurkenningin veitt fyrirtækjum, sveitarfélögum og opinberum aðilum sem hafa náð að jafna kynjahlutfall í framkvæmdastjórnum. Í ár voru 130 viðkenningarhafar úr hópi þeirra 247 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu um að jafna kynjahlutfall og er markmið Jafnvægisvogarinnar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnunarlagi.

Í ár verða gróðursett 130 tré eitt fyrir hvern viðurkenningarhafa árið 2024 og verður þá búið að setja niður samtals 392 tré í Jafnréttislundinum á síðustu 5 árum. Það er markmið Jafnvægisvogarinnar að endurtaka þetta árlega og væri ánægjulegt að sjá hlíðina fyllast á næstu árum, með auknu jafnrétti.

 Sjá fréttatilkynningu

     


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00